Black Panther
Hesthusið, hundarnir og kaninurnar
14.07.2006 18:46:34 / acero

Komið haust

Ég bara meina það, þetta er ljóta veðrið hérna á þessu anskotans skeri.  Ég er búinn að fá nóg ætla alvarlega að fara að skoða að flytja út.  Það á að heita sumar en hitastigið er varla meir en á drungalegu hausti. Það bjargar að mar er búinn að fara í sólina í sumar og fá smáskammt af brúnku ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 21:21:51 / acero

Er erfitt að vera karlmaður ?

Nei, það er ekki erfitt :lol:, til að gera konuna hamingjusama, þarf bara að vera:

1.         vinur
2.         félagi
3.         ástmaður
4.         bróðir
5.         faðir
6.         húsbóndi
7.         yfirmaður
8.         rafvirki
9.         trésmiður
10.        pípari
11.        handlaginn
12.        skreytimeistari
13.        stílisti
14.        sérfræðingur í kynlífi
15.        mannþekkjari
16.        sálfræðingur
17.        hagfræðingur
18.        reiknimeistari
19.        góður huggari
20.        góður hlustandi
21.        skipuleggjari
22.        góður faðir
23.        snyrtilegur
24.        samúðarfullur
25.        sportlegur
26.        hlýr
27.        skemmtilegur
28.        aðlaðandi
29.        snillingur
30.        fyndinn
31.        hugmyndaríkur
32.        mjúkur
33.        sterkur
34.        skilningsgóður
35.        þokkafullur
36.        prúður
37.        metnaðarfullur
38.        hæfileikaríkur
39.        þolgóður
40.        skynsamur
41.        trúr
42.        ábyggilegur
43.        ástríðufullur

og gleymir aldrei að:

44.       gefa henni gjafir reglulega
45.       fara með henni að versla
46.       vera heiðarlegur
47.       vera örlátur
48.       að stressa hana ekki
49.       horfa ekki á aðrar konur

og um leið þá verðurðu líka að:

50.       veita henni mikla athygli, og hugsa ekki mikið um sjálfan þig
51.       gefa henni allan tíma sem hún þarf
52.       gefa henni mikið frelsi, ekki hafa áhyggjur af því hvert hún fer

Það er mjög áríðandi:

53.       að gleyma aldrei:

    1.         afmælisdögum
    2.         brúðkaupsdögum
    3.         plönum sem hún hefur ákveðið

TIL AÐ GERA KARLMANN HAMINGJUSAMANN :

1.         Gefa honum að borða
2.         Sjá til að hann fái það reglulega
3.         og þegja svo....

Og svo segja stelpur að það sé erfitt að vera kona ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 16:35:17 / acero

Ummæli um Bubba dauð og ómerk

og honum dæmdar 700 þúsund krónur í bætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt ummæli, sem höfð voru um Bubba Morthens í blaðinu Hér og nú dauð og ómerk. Þá er fyrrverandi ritstjóri blaðsins dæmdur til að greiða Bubba 700 þúsund krónur í bætur auk 500 þúsund króna í málskostnað.

Þá segir dómurinn, að telja verði að myndataka af manni, sem sitji í bifreið, sé óheimil á sama hátt og myndataka á heimili hans, þótt við sérstakar aðstæður kunni hún að vera heimil. Umræddar myndir hafi verið teknar af Bubba þar sem hann sat í bíl sínum á götuhorni í Reykjavík. Ökuferðin eða dvöl stefnanda í Reykjavík þá stundina hafi ekki verið sérstaklega fréttnæm og hafði ekki þýðingu í almennri þjóðfélagsumræðu á þeim tíma. Sama verði að segja um þær staðreyndir, að hann hafi verið að tala í farsíma og með sígarettu í munninum. Myndatakan og birting myndanna hafi því verið tilefnislaus........Myndatakan og birting myndanna hafi hins vegar verið óheimil og því hafi verið brotið gegn friðhelgi einkalífs stefnanda.

Ég bara verð að segja LOKSINS.  Rosalega er gott að vera loksins kominn með fordæmi gegn þessu.  Væri gaman að heyra hvað ykkur hinum finnst?

Hvað segir DJ þar sem þú ert nú að hluta til hinu megin borðins.


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 10:53:22 / acero

Loksins pása

Hæ allir, loksins er komin smá pása hjá mér.  Skilaði 1. lokaverkefninu á föstudaginn.  Bara brylleruðum þarna uppá sviðinu hópurinn okkar, og við erum meir að segja komin með fyrirtæki út í bæ sem vill skoða við okkur samstarf um að þróa þeirra hugmynd.  Vá það yrði ekki leiðinlegt að taka þátt í  2milljarða dæmi sem svo landinn og túristarnir koma til með að horfa á og nota um næstu áratugi. ;). Sjáum hvað setur.  En ég er sem sagt kominn í pásu frá skólanum í 3 daga :D Þá tekur við lokaáfanginn í þessu og ég var að heyra í fyrri nemendum að hann væri ekki léttari.  Damn hvað verður gott að vera búinn með þetta í vor. Þannig að kannski líða nokkrir dagar á milli blogga. :S

En ég er með smá fréttir, haldiði að strákurinn hafi ekki laumað sér á 1 date.. (fyrir 2 vikum síðan), með þessari líka æðislegu stelpu, og við erum búin að hittast soldið síðan.  Maby I've found my lobster. :o


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 13:48:58 / acero

Þetta er nottlega grín

Þetta er nú bara doldið fyndir mar.  Það er aftur komin helgi.... Hvað varð um þessa viku. Hmmm þetta fer að verða vikuleg spurning, damn. Skánar vonandi þegar skólinn er buinn,  baaaaraaaa 3,5 mánuðir eftir :) en djöfull að hestakvikyndið skyldi ekki fíla sporana. Ég bara er ekki að skilja það. 

Annars er þetta búið að vera skemttileg vika, þvílíkt fjör. Bíllin tók uppá því að sprengja blokkina, minn búinn að skrá sig á kransakökunámskeið, ( nebbilega tók að mér að baka kökuna fyrir ferminguna hjá dótturinni), bara snilld, Það verður nefnilega bökuð 40 manna kransakaka á námskeiðinu sem maður tekur svo heim.  Miklu skemmtilegra heldur en að kaupa út úr bakaríi og svo miklu ódýrara.  Ég er eiginlega viss um að ég verð eini gaurinn á námskeiðinu.  Ætti kannski að setja lokk í eyrað svo ég verði ekki étinn.

Hey ég er að reyna að setja inn mynd af sporanum, er einhver sem getur sagt hvernig það er gert á þessum vettvangi?.  Er ekki alveg að ganga upp eins og maður myndi halda að það ætti að gera...... Svo þykist maður kunna á tölvur, best að éta það ofan í sig.  Endilega ef einhver kann. 

Svo skal ég reyna að vera duglegri að blogga, lofa samt engu......

Ciao e arrivadersi


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 23:14:41 / acero

Einn ein helgin komin

Er ekki bara komin helgi.  Hvað varð um þri, mið, fim??? Síðasta sem ég man var að það var mánudagur. Góð vika samt sem er að klárast, lét hafa mig í þvílíka vitleysu að það hálfa væri yfirdrifið, en hvað er lífið án skemmtilegra og óvæntra uppákomna :) Meir að segja gróf upp gamlan leðurgalla, stívél, spora og pottlokið.  Snilld ;)   Verst að hjólíð skuli vanta. Gæti samt alltaf smellt mér á hestinn...  Það yrði eitthvað til að fá nágrannana til að snúa sér 180°  lol.

» 9 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 00:35:25 / acero

Einn fyrir ykkur sem hafið sama húmor og ég ;)

Eins og venjulega fór Eddi snemma í háttinn, kyssti konuna góða nótt og steinsofnaði. Seinna um nóttina vaknar hann og sér gamlan mann inn í svefnherberginu, klæddan í hvítan kufl.

"Hvað í andskotanum er þú að
gera
í svefnherberginu mínu ?" segir Eddi reiður.

"Þetta er ekki svefnherbergið þitt," segir maðurinn, "þú ert kominn til himna og ég er Lykla-Pétur."

"HVAÐ? Ertu að segja að ég sé dauður ? Ég vil ekki deyja... ég er allt of ungur og á eftir að gera svo margt," segir Eddi. " Ef ég er dauður þá vil ég að þú sendir mig til baka á stundinni!"

"Það er nú ekki svo einfalt," Svarar Pétur. Þú getur aðeins snúið tilbaka sem hestur eða hæna. Eða haldið áfram að vera dauður auðvitað.

Eddi hugsaði þetta í nokkrar mínútur og komst að því að það er örugglega ekkert auðvelt líf að vera hestur, úti að hlaupa allan daginn með einhvern á bakinu, svo af tvennu illu þá væri líklegra betra að snúa aftur sem hæna. Það væri ábyggilega letilíf.

"Ég vil snúa aftur sem hæna..." samstundis var Eddi kominn í hænsnakofa með fallegar fjaðrir og allar græjur. En almáttugur hvað honum var illt í afturendanum. Það var eins og hann væri að springa!

Þá kemur haninn....

"Hæ þú hlýtur að vera ný hérna. Hvernig hefurðu það?

"Allt í lagi býst ég við" Svarar Eddi en mér finnst eins og rassinn á mér sé að springa!

"Þú ert bara að fara að verpa. Hefurðu aldrei verpt áður?

Nei hvernig geri ég það?

"Gaggaðu tvisvar og þrýstu svo af öllu afli" Svarar haninn. Og Eddi gaggar tvisvar og rembist svo eins og hann eigi lífið að leysa.  Skömmu síðar liggur hans fyrsta egg á gólfinu. "Vá segir Eddi þetta er meiriháttar svo gaggar hann aftur tvisvar og byrjaði að rembast og eitt 
e
gg í viðbót liggur á gólfinu.

Þegar hann gaggar í þriðja sinn heyrir hann konuna sína öskra: "Vaknaðu Eddi, í öllum bænum.
Þú ert búin að skíta út um allt rúm!
 


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 17:38:51 / acero

Skoðanakönnun

Hæ ég er að vinna lokaverkefni í skólanum í Markaðsfræði og þarf að fá sem flesta til að svara skoðanakönnun í tengslum við það. 

Ef þú hefur tíma endilega smelltu á linkinn fyrir neðan og taktu þátt.  Ég þarf helst að fá 2000 - 3000 svör til að könnunin verði sem marktækust  :S  þannig að það munar um hvert og eitt svar:lol:

Hér er linkurinn á könnunina:

http://www.createsurvey.com/c/33266-VL5uLI/

English version:

 

 

 

Hi, I'm graduate student from The University of Iceland and doing Marketing project as the final.  Therefore I need as many people as possible to do this survey for me.

If you have time please clik on the link below and do the survey, only 10 questions. I need 2000 - 3000 attendees so it will be reliable. Every answer counts.  Thanks

http://www.createsurvey.com/c/33330-hc7krg/






» 8 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 12:10:20 / acero

Smá meira

Jæja loksins er ég búinn að bæta aðeins inn linkum og upplýsingum. Vona að þið hafið gaman af að skoða.

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.01.2006 21:29:49 / acero

Þetta hefst með kalda

Þetta hefst vonandi fljótlega svona þegar ég er búinn að læra á þetta apparat. 0

» 2 hafa sagt sína skoðun